Þetta er merki trúleysingja. Hér til hliðar er líka linkur inn á síðu út úr skápnum baráttunnar. Nýlega fengum við þessa spurningu: En, þurfa trúleysingjar ekki siðferðislegt aðhald, svona eins og boðorðin? Við vorum mjög hissa á að fá þessa spurningu, því þessi einstaklingur er mjög víðsýnn. Þetta opnaði augu mín fyrir því að fólk veit ekki hvað það er að vera trúlaus og veit þess vegna ekki af þessum valkosti. Ég las nýlega hugleiðingu um þetta ástand: að alast upp við trú og vita ekki að það er valkostur að trúa ekki. Sjálf var ég trúuð á yngri árum. Ég skilgreini það sem barnatrú sem entist mér fram á unglingsár. Ég var virk í sunnudagaskólanum og unglingastarfi kirkjunnar, ég var í kirkjukór og ég fermdist, ekki bara (líka, en ekki bara ;)) til að fá gjafirnar, heldur í góðri trú. Ég bað alltaf bænirnar mínar á kvöldin og signaði mig áður en ég fór að sofa. Ef ég gleymdi þessu gat ég ekki sofnað. En þegar tíminn leið spurði ég mig sjálfa mig: af hverju bið ég á hverju kvöldi? Ég trúi ekki á guð. Það tók smá tíma að venjast því að biðja ekki. Ég hafði verið svo vön því að vera virk í þessu starfi en þegar ég varð of gömul fyrir unglingastarfið sá ég að ég var bara þarna fyrir félagsskapinn, sem ég gat vel fengið annarsstaðar. Ég hætti í kirkjukórnum því ég hætti að þola þessar eilífu Ave Maríur. Það er til sá valkostur að trúa ekki.
Spurt er
Hvaðan komstu inn á þetta blogg?
Færsluflokkar
Tenglar
Snjallt
- Dohop.com-blogg Vikulegt blogg eftir mig birtist hér.
- Hending Heimasíða nemendafélags táknmálsfræðinema
- Félag heyrnarlausra
- HÍ
- Lindy Hop Samfélag Lindy-hoppara á Íslandi
- Mæspeis-síðan mín Þið þekkið öll mæspeis...
- The out campaign Trúleysingjar, út úr skápnum!!!
- Trúarlegar teiknimyndasögur religiouscomics.net
- Then Iceland eða The Niceland? Túristasíða systur minnar
- Málaskólinn Frú Mínerva Systa kennir spænsku
Vinir og vandamenn
- Olle Axen Sænski víkingurinn minn
- Karólína Aldavinkona
- Sigrún Litla vinkonan mín
- Ásrún
- Atli Viðar hinn snjalli
- Solveig í Japan Solveig í japan
Myndaalbúm
Myndir úr mínu lífi og annarra
- Myndasería 1 Myndir úr fríi í Kosta Ríka í júní 2007
- Myndasería 2 Myndir úr fríi í Kosta Ríka í júní 2007-partur 2
- Flickr-síðan mín Nokkrar vel valdar myndir
Bloggvinir
Mars 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég held að flestir trúi á Guð vegna þess að, eins og þú segir, þeir vita ekki að það sé valkostur að trúa ekki. Þ.e. þeir hafa verið aldir upp við það og það er normið. Svo eru þeir sem trúa vegna þess að þá vantar eitthvað í lífið. Og mér finnst það þá bara allt í lagi. Ég þarf ekki á Guði að halda, ég trúi ekki. Það þýðir samt ekki að ég heiðri ekki boðorðin.
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 21.10.2007 kl. 01:20
Einmitt! Ég ætlaði einmitt að bæta því inn í við þetta komment sem við fengum frá þessum aðila sem ég sagði frá að við HÖFUM siðferðislegt aðhald. Það heitir STJÓRNARSKRÁIN ;)
Rúna Vala, 21.10.2007 kl. 12:03
Upplifði einmitt það sama, trúði útaf vana og var meira að segja í æskulýðs- og barnakórum í fjöldamörg ár. Hef verið utan trúfélaga í 2 og hálft ár núna og er svo alltaf á leið að skrá mig í Siðmennt. Það kemur á endanum ;)
Steinunn (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 22:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.