Mér finnst það mætti nú aðeins minnka kommunotkun í þessari frétt. Það er beinlínis óþægilegt að lesa seinni hluta hennar vegna þess að það eru kommur út um allt! Mér fannst þörf á að minnast á þetta því það er mjög algengt hjá fréttamönnum mbl.is að kommur í texta þeirra hreinlega spilli fréttinni og trufli lestur á henni. Annars er alveg nóg af fólki sem bloggar um innihald fréttarinnar.
"Ólafur Ragnar sagði eftir fund með Ingibjörgu og Steingrími, að hans niðurstaða, eftir viðræður við formenn flokkanna í gær, hefði verið, að ekki væri grundvöllur, að svo komnu máli, til að hefja viðræður um samstarf allra flokka, sem stundum hefur verið nefnd þjóðstjórn. Hann bætti við, að sögulega séð hafi þó stjórn sem bar það heiti fyrir 60 árum, ekki verið stjórn allra flokka."
Vissulega eiga sumar kommurnar rétt á sér, en mér finnst að blaðamaðurinn ætti að fara yfir reglur um kommunotkun.
Falið að mynda stjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spurt er
Færsluflokkar
Tenglar
Snjallt
- Dohop.com-blogg Vikulegt blogg eftir mig birtist hér.
- Hending Heimasíða nemendafélags táknmálsfræðinema
- Félag heyrnarlausra
- HÍ
- Lindy Hop Samfélag Lindy-hoppara á Íslandi
- Mæspeis-síðan mín Þið þekkið öll mæspeis...
- The out campaign Trúleysingjar, út úr skápnum!!!
- Trúarlegar teiknimyndasögur religiouscomics.net
- Then Iceland eða The Niceland? Túristasíða systur minnar
- Málaskólinn Frú Mínerva Systa kennir spænsku
Vinir og vandamenn
- Olle Axen Sænski víkingurinn minn
- Karólína Aldavinkona
- Sigrún Litla vinkonan mín
- Ásrún
- Atli Viðar hinn snjalli
- Solveig í Japan Solveig í japan
Myndaalbúm
Myndir úr mínu lífi og annarra
- Myndasería 1 Myndir úr fríi í Kosta Ríka í júní 2007
- Myndasería 2 Myndir úr fríi í Kosta Ríka í júní 2007-partur 2
- Flickr-síðan mín Nokkrar vel valdar myndir
Bloggvinir
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessuð og sæl,
Reglur um kommunotkun eru nú síður en svo stöðugur fasti..meðan ég var í skóla breyttust þær að minnsta kosti fjórum sinnum. Sú notkun sem þarna gefur að líta, er nokkuð lík þeirri sem ég nam fyrst, þó vissulega hafi maður eitthvað aðlagast því sem nú er í tísku í þeim efnum. Ef til vill er þetta nostalgía hjá blaðamanni, sem sér eftir gömlu kommureglunum, þegar kommurnar voru miklu fleiri en nú þykir til siðs. Ef til vill hefur hann bara haldið sig við þær reglur sem honum voru kenndar í skóla á sínum tíma. Ekki það að þetta skipti neinu höfuðmáli. Mig langaði bara að benda á þetta. Sumir skrifa t.d. enn með z og þykir flott.
Hrólfur Sæmundsson (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 13:47
Þakka þér fyrir þessa athugasmd, Hrólfur. Sjálfri finnst mér að notkun komma ætti ekki að eyðileggja flæði texta. Mér finnst það líka benda til ofnotkunar á kommum þegar þær eru það eina sem maður teku eftir í fréttinni.
Rúna Vala, 28.1.2009 kl. 13:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.