Góðan dag börnin góð!
Ég ætla bara
rétt að láta vita af mér... ef það er enn einhver sem les þetta blessaða blogg mitt.
Smá fréttir (nei ég er ekki ólétt):
1: Ég hef látið klippa mig alveg stutt
2: Ég verð að vinna á leikjanámskeiði (sumarfrístund ÍTR) í sumar
3: Við höldum áfram að taka in sófadýr í sumar, sumarið er meira og minna uppbókað.
Hér má finna Google-dagatal yfir sófadýrin okkar, fyrir áhugasama.
4: Við hjónakornin verðum alfarið á landinu í sumar (ekkert lindýhoppnámskeið í sumar eins og planað var)
5: Ég hef hafið bloggskrif á síðunni http://blog.dohop.com, einu sinni í viku. Hlekk á bloggið má finna í hlekkjasafninu mínu hægra megin á síðunni.
6: Ég hef ákveðið að skrifa eitt ljóð á dag í júní.
Annað hef ég ekki að segja, börnin góð,
nema: GLEÐILEGT SUMAR!!!
Bloggar | 1.6.2009 | 20:43 (breytt 13.6.2009 kl. 21:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Já, það er gaman að sjá að líflegar og (oft) málefnalegar umræður sköpuðust um mitt síðasta blogg. Þetta sýnir að þetta er mjög mikið hitamál hjá mörgum og að þetta þarf að ræða til hlítar.
En svo að ég breyti nú um umræðuefni, þá var ég að lesa 9. kafla Eirbyggja sögu og gera úr honum smá málvísindaverkefni. Ég ætla að segja ykkur um hvað hann fjallar.
Á Þórsnesþingi voru margir úr ætt Kjalleklina saman komnir og þeim þóttu Þórsnesingar einum of góðir með sig að leifa fólki ekki að míga og skíta hvar sem það vildi því að land þeirra, sem þingið var haldið á, væri eitthvað "merkilegra" eða "heilagra" en lönd annarra. Þeir neituðu að eyða sínum dýrmætu skóm til að ganga út á nes til að gera þarfir sínar. Þorsteinn Þorskabítur safnaði að sér mönnum sem samþykktu að verja landið ef einhverjir myndu ætla að sinna kalli náttúrunnar þar. Um kvöldið, þegar Kjalleklingar voru búnir að éta og drekka fylli sína, gengu þeir í átt að nesinu, en beygðu út af leið áður en þangað var komið. Þegar Þorsteinn og hans menn urðu þess varir hlupu þeir til með stríðsópum og réðust að Kjalleklingum. Þarna varð mikill bardagi og þrátt fyrir að Þorgestur hinn gamli og Áslákur úr Langadal reyndu að stía þeim í sundur, varð mikill mannskaði. Hóparnir skildu í illu og Kjalleklingar fengu ekki að gera þarfir sínar á vellinum, þar sem þeir vildu, heldur fóru um borð í skipið sitt og sigldu burt.
Segið svo að íslendingasögurnar séu leiðinlegar!
Bloggar | 18.4.2009 | 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta fólk var búið að laga húsið örlítið til og koma af stað starfssemi sem er öllum til góða. Þarna hefði verið hægt að halda pólítíska og ópólítíska fundi, vera með ljóðaupplestur og tónleika, svo eitthvað sé nefnt. Við hjónin íhuguðum að fara þangað niðureftir með húsgögn sem við þurfum ekki á að halda lengur og skilja þau eftir í Fríbúðinni til að aðrir geti notið þeirra. Svæðið er fíknefnalaust og ég geri ráð fyrir að það feli líka í sér áfengi og sígarettur. Ég segi tökum ÖLL þau hús sem standa auð, greinilega til að þau grotni og það verði að rífa þau og byggja nýja glerrisa, og gerum úr þeim samkomustað fólks með háleit markmið en engan stað til að framkvæma þau. Þetta myndi einnig setja mjög heillandi og skemmtilegan svip á miðbæinn.
Sextán handteknir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.4.2009 | 10:42 (breytt kl. 10:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (60)
Hér er hönd
um hönd
frá hendi
til handar.
Hér er hestur
um hest
frá hesti
til hests
Blóðsugur björguðu höndinni?
Blóðsugur björguðu hestinum
frá hestinum
frá hendinni
Blóðsugur björguðu HENDINNI.
Takk.
Blóðsugur björguðu hendinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 24.2.2009 | 12:45 (breytt kl. 12:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mér finnst það mætti nú aðeins minnka kommunotkun í þessari frétt. Það er beinlínis óþægilegt að lesa seinni hluta hennar vegna þess að það eru kommur út um allt! Mér fannst þörf á að minnast á þetta því það er mjög algengt hjá fréttamönnum mbl.is að kommur í texta þeirra hreinlega spilli fréttinni og trufli lestur á henni. Annars er alveg nóg af fólki sem bloggar um innihald fréttarinnar.
"Ólafur Ragnar sagði eftir fund með Ingibjörgu og Steingrími, að hans niðurstaða, eftir viðræður við formenn flokkanna í gær, hefði verið, að ekki væri grundvöllur, að svo komnu máli, til að hefja viðræður um samstarf allra flokka, sem stundum hefur verið nefnd þjóðstjórn. Hann bætti við, að sögulega séð hafi þó stjórn sem bar það heiti fyrir 60 árum, ekki verið stjórn allra flokka."
Vissulega eiga sumar kommurnar rétt á sér, en mér finnst að blaðamaðurinn ætti að fara yfir reglur um kommunotkun.
Falið að mynda stjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.1.2009 | 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggar | 22.12.2008 | 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggar | 3.11.2008 | 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggar | 30.9.2008 | 17:21 (breytt kl. 17:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Spurt er
Færsluflokkar
Tenglar
Snjallt
- Dohop.com-blogg Vikulegt blogg eftir mig birtist hér.
- Hending Heimasíða nemendafélags táknmálsfræðinema
- Félag heyrnarlausra
- HÍ
- Lindy Hop Samfélag Lindy-hoppara á Íslandi
- Mæspeis-síðan mín Þið þekkið öll mæspeis...
- The out campaign Trúleysingjar, út úr skápnum!!!
- Trúarlegar teiknimyndasögur religiouscomics.net
- Then Iceland eða The Niceland? Túristasíða systur minnar
- Málaskólinn Frú Mínerva Systa kennir spænsku
Vinir og vandamenn
- Olle Axen Sænski víkingurinn minn
- Karólína Aldavinkona
- Sigrún Litla vinkonan mín
- Ásrún
- Atli Viðar hinn snjalli
- Solveig í Japan Solveig í japan
Myndaalbúm
Myndir úr mínu lífi og annarra
- Myndasería 1 Myndir úr fríi í Kosta Ríka í júní 2007
- Myndasería 2 Myndir úr fríi í Kosta Ríka í júní 2007-partur 2
- Flickr-síðan mín Nokkrar vel valdar myndir
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar